Auðfríður Löver
19.02.2007 23:45:42 / jonas

.

 

 

                                                                            Þegar þú :) langar mig að :* þig.

                                                                            Þegar ég :) vil ég að þú :* mig.

                                                                            Þannig að næst þegar þú sérð mig

                                                                            skaltu búast við :)

 

 

Af mér og mínum:

 

    Það var árshátíð í síðuastu viku. Rættist heldur betur úr henni, fyrrpartý hjá Guðbjörgu ást, sem var gæða! Rapp var í hávegum haft og Siggi var án efa konungur kvöldsins. Hann sá um að skemmta öllum og er enn að ná sér niður eftir kvöldið. Hellings mix í gangi hjá hinum ótrúlegustu páfuglum. Eitthvað var þó um drama og þess háttar, þar sem Sigga beibíj var alltaf gerð að hlustanda, greyið. Allt í góðu núna vona ég. Takk bara allir sem komu að þessari skemmtun :lol: ;*

 

    Fór líka norður til Þorgerða fyrir stuttu. Ótrúlga gaman það, þökk! ;)

 


    Elskurnar, er ekki í skapi til að segja ykkur neitt meira og þar sem ég ætlaði að bíða með þetta blogg fram að páskafríinu ætla ég ekki að lofa neinu um næsta blogg. Það kemur ef það kemur

 

                                                                                                    Loves ;*

 

 



» 4 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 16:32:34 / jonas

Jóóólafríííí

   
     Mér er heiður að tilkynna að ég er komin í jólafrí! Var í ensku í morgun sem var helst til mikil skita að flestra mati.

     Það vill samt alltaf gerast að maður fær smá spennufall eftir prófin. Búin að hlakka þvílíkt til að komast í jólafrí og búin að plana ALLT sem ég ætla að gera .. en nei svo endar það með því að maður fer bara að sofa eða eitthvað álíka spennandi. En jólafrí engu að síður. Sem tekur snöggann endi í byrjun næstu viku þegar hinar geysivinsælu jólaæfingabúðir hefjast. Að þessu sinni fela þær í sér 2x7km æfingar á dag takk fyrir og svo endar gleðin (fyrir jól) á 10km + þreki á Þorláksmessumorgun. Að loknum jólum taka herlegheitin í lauginni við að nýju. Til að brjóta þetta upp verður svo þrek hjá Ómari svona inná milli og reyndar verður jólaball MH á þriðjudaginn :haha:

Svo verður haldið til Antwerpen (Belgíu) í byrjun janúar, sem verður voða gaman :lol:

    Ég kveð að sinni, kem vonandi með eitthvað meira spennandi blogg næst krakkar mínir ;)
   

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 23:32:13 / jonas

enn hér


    ÞAÐ ER ÓGEÐSLEGT VEÐUR ÚTI

Þrátt fyrir ógeðisveður og þá staðreynd að það er desember, þá ákvað pabbi minn að grilla um daginn. Sem endaði með stórglæsilegri áramóabrennu úti í garði. Þrátt fyrir það var kjötið ágætt.. þegar búið var að fjarlægja 3 cm brunarústir.

Lítið að gerast. Allir í prófum bara. Ég á bara helminginn eftir, 3 og svo er jólafrí með öllu tilheyrandi :lol:

                        Heyrumst eftir það .. natten ;*



» 5 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 22:58:34 / jonas

takk fyrir síðast og allt það ..

       
 Where the wild roses grow - Nick Cave & Kylie Minogue

Gullmoli: maður, oft þekktur undir nafninu Ólafur Marteins, sagði eitt sinn við föður sinn: Pabbi, af hverju ertu með gras á fótunum ?! :lol:


Það sem átt hefur, eða er um það bil að eiga sér stað:
  • Hann pabbi minn átti afmæli síðasta laugardag. Sá gamli orðinn 50 ára! 8|
  • Ég er búin að finna fokking fæn kótilettu í skólanum mínum (sem ekki verður nafngreindur að svo stöddu ;) )
  • Eyleifur hefur tekið ástfóstri við orð á borð við: "sæbjúga" & "marinera"
  • 18 dagar í ÍM: nú má ekki lengur leggjast á beit um helgar, fyrr en mótinu lýkur (bjartsýnin nær hámarki með þessari staðhæfingu)
  • Jólafríið mitt hefst þann 13. desember
  • & að lokum eru ekki nema 55 dagar í jólin! :D
Þetta síðasta minnir mikið á að það er kominn vetur englabossar! mismikill fögnuður við þær fréttir. Bílaáhugamennirnir í hópnum okkar vakna með hlakk í hjarta fyrir morgunæfingar í von um að það sé hálka á bílastæðinu í Laugardalslauginni ;)

En um helgina var eitthvða smotterís-mót. Gekk bara nokk vel hjá flestum. Svo í gærkvöldi kíkti ég á rúntinn með honum Tóta yndi & fór svo til Ólafar. Skoðuðum gamlar og nýjar sundmyndir og það sem hægt er að skemmta sér yfir þeim sjitt sko :lol: Svo átti að vera æfing í morgun en herr Leifa tókst svo snilldarlega að sofa yfir sig. Get ekki sagt að það hafi verið harmleikur fyrir neinn. Flestallir þakklátir að geta farið heim og sofið klukkutíma lengur.

    Efnafræðin bíður mín..  sir Auður Newton ;*






» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 23:57:44 / jonas

þangað og til baka

Hey krútt! ég er ekki frá því að það sé dottið í VETRARFRÍ hérna megin með tilheyrandi marineringu í uppsiglingu.

ég og olga komum heim frá skotlandi á þriðjudaginn ásamt leifa. ferðasagan í stuttu máli: synda, borða og sofa auk þess sem við misstum okkur helst til mikið í gleðinni í H&M. grand það.

           Fyrsti dagurinn var samt sá allra versti. vorum sótt út á flugvöll af yfirþjálfaranum. hreinræktuð áströlsk sæbjúga. held að eftir því sem þjálfararnir séu betri/strangari því feitari séu þeir. vorum svo bara eitthvað að mingla heima hjá honum fram að æfingu að hlusta á hvað stelpurnar í liðinu hans eru snarbrjálaðar, þar til við vorum farnar að svitna í sætunum okkar af stressi. þá fórum við bara að horfa á sjónvarpið. svo var það fyrsta æfingin af 6 (sem urðu síðar 7 okkur til mikils yndisaukaþegar ein bættist við morguninn sem við flugum heim). en sú fyrsta var hreinn viðbjóður gott fólk! það eru engar ýkjur. púlsinn um 150 áður en við stungum okkur útí af stressi, 8,6 km stanslaust sund í 2 klukkutíma .. mun seint teljast sem marinering. svo var okkur deilt niður á fósturfjölskyldur. stelpurnar fóru saman yfir götuna og ég fór í bíltúr lífs míns heim til ókunnugs fólks sem á snælduvitlausan, feitan og krúttlegan hund. eftir langþráðan kvöldmat og bjagað spjall á ensku fór ég uppí herbergið mitt með tvíbreiða-rúminu mínu og grét mig næstum í svefn eftir að hafa lesið "hvernig gengur?" sms frá pabba und mömmu! :$

             Næstu dagar voru frekar venjulegir. versluðum, vórum í bíó á 6. hæð og skoðuðum eldgamlan kastala. æfingarnar voru að sjálfsögðu til staðar. þó mun auðveldari andlega. ætla ekki að þreyta ykkur með meiru en verð samt að fá að segja ykkur frá því daginn sem við fórum var okkur sagt að þjálfarinn myndi keyra okkur heim beint eftir morgun-aukaæfinguna okkar. ekkert mál, þar til dýrið stoppaði fyrir utan McDonalds og tjáði okkur að við værum að fara að fá okkur morgunmat. jáá belive it or not. :lol:

               Þrátt fyrir stanslaust fjör í skotlandi var mad að koma heim. maður missti sig í glápinu þegar maður sá aftur fallegu íslensku strákana okkar svona samanborið við hryðjuverkin í útlandinu..

             Ritstífla farin að segja vel til sín ;* 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 21:54:14 / jonas

helgin gengin út

   

 Mér finnst of stutt síðan þessi helgi hófst að loknu sjúku þreki a la ómar. harðsperrurnar létu einmitt á sér kræla þegar ég ætlaði að brokka niður tigann í morgun. eftir æfinguna var hins vegar marinering í boði óla, með nammi & lord of the rings í gangi! síðan var það keila með fjölskyldunni, sem var frekar nett, komst að því að mér er ekki ætlað að stunda þennan leik frekar en að vera á skautum :lol:    deginum lauk svo með afmæli hjá jóhönnu sem var kósí.

en ég fór á busaball mh fyrir skemmstu sem var m a d! (mun án alls efa smella einhverjum myndum inn). ólöf lára lét sjá sig. om meðal annars og sótti mig í fyrirpartýið þar sem hún var nýkomin með bílprófið og við tókum fyrsta löllarann hennar á þetta. höfðum reyndar ekki þolinmæði í að klára því það var crowded. en held það hafi verið seldir 1200 miðar á broadway & þeir sem léku fyrir dansi voru ekki af verri endanum:

  • Dr mister & mr handsome. sem fengu ekki peninginn sinn þar sem þeir voru í annarlegra ástandi en nokkur annar í húsinu..
  • DJ Páll Óskar: tryllti lýðinn eins og honum einum er lagið! maðurinn ætti að vera skilda á öllum böllum. bestur
  • Jeff who ? létu líka sjá sig: Barfly gerði virkilega góða hluti ;)
  • síðan má ekki gleyma dj-unum í herberginu á móti stóra sviðinu sem var sveittasti staðurinn á svæðinu 8| ég fór inn og það kæmi mér ekki á óvart ef tugir manna hefðu fallið í yfirlið á þessum tíu fermetrum!
og fokkje, fór á step up á föstudagskvöldi! er fólk að djóka á fæn guar! djii, ef þetta væri möguleiki þá held ég að sá hinn sami fengi ekki mikinn frið sko .. haha svo var reyndar frekar vandræðalegt þegar vinkona mín var búin að keyra mig heim þá varð ponsulitli bílinn rafmagnslaus! sjitt hvað það var fyndið :haha:

svo er það fyrirhuguð skotlandsför eftir 10 daga [já snæfríður telur niður klukkutímana]. ég, hún og olga erum sem sagt að fara í langsundsæfingabúðir til glasgow 28. ekki enn komið á hreint hvar við gistum :$ .. þetta verður helst til skemmtilegt og þar sem við höfum ekki mikið að gera milli æfinga þá hljómar "að versla" mjög skemmtilega ;) en einnig eru æfingabúðir í keflavíkinni næstu helgi sem er spennandi ..

nú er hins vegar ekki annað að gera en að undirbúa sig andlega fyrir komandi viku ..

                        lifið heil. bless ;**

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 22:08:21 / jonas

Romario

   

An Envoy To The Open Fields - Mew


Allt hressst & allt að gerast. Skólinn að byrja og ég með stundatöflu sem sökkar. En ætli ég verði ekki að lifa með þessu. Fyrsti dagurinn hennar Siggu sem mh-ingur var ferskur. við sitjum ekki lengur á borði sem er að springa af mannfjölda. hitt var í það minnsta. Sunna var á sínum stað með krullurnar sínar, óli mætti með koddann sinn [Gunanr] og svaf vært á nýja borðinu sínu.
    það verst við þennan dag var að rektorinn hefur ákveðið að framvegis skuli kennararnir byrja að kenna fyrsta daginn. þetta hefur alltaf verið bara svona "fá námsáætlun & fara svo" dagur en nei ekki lengur takk fyrir. Hví ? bara til þess að stuðla að skólaleiða fyrr eeen það mun ekki virka á mig. búin að lofa að vera dugleg :lol:


                   ekki nema 119 dagar í jólin ..


svo eru það æfingarnar sem eru að slá í gegn! allir hressir þar. vetrarforðinn sem var farinn að safnast upp í sumar er óðum að fjúka af lýðnum að mér skilst ;)



             En komið vel nóg. /tudrur eru í hléi, ekki jafn hresst en það reddast :]
                                                       Auður ;*

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 00:16:08 / jonas

Sveitt laugardagskvöld



jiiiiis

heyrist á öllum að þessi helgi hafi hlotið prýðiseinkunn ;) einkum og sér í lagi laugardagskvöldið. sveitt & yfirfull af páfuglum, auk þess sem handklæði slógu í gegn sem höfuðföt á laugarveginum.

Ég hef gert lítið annað frá síðasta bloggi en að vinna [læt vita ef eitthvað gerist] .. sveittar vaktir með söndru,sunnu & írisi. sem ég mun sakna þegar skólinn hefst. hitti írisi reyndar í skólanum þar sem hún ákvað að beila á fá.

About to happen:

        - Sundæfingar
        - Skóli. hate it or love it
        - No more vinna.
        - Menningarnótt
        - Reykjavíkurmaraþonið ? [10 km]

20. ágúst stefnir í að ná heimsyfirráðum! hellingur skemmtilegt að gerast. Sandra kemur frá dk [eins gott fyrir hana að það verði ekki seinna]. Sólveig beibíj mætir heltönuð & hress á svæðið eftir Floridaferðina sína! & ég er ekki frá því að hún Þorgerður flytjist búferlum til ömmu und afa. :lol:

Fallegt. meira seinna :lol:

» 8 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 15:24:39 / jonas

afmælis


I write sins not tragedies - Panic! at the disco


Afmælisbörn mánaðarins:

6. Óli sundnörd: 17 ára. bílpróf eða .. ?
7. Laddi stóri bróðir! 20 ára :D
10. Þarna fæddist Perlan mín orðin 18 ára ;)
11. Steini: 18 ára kjéppinn :]
25. Stelpan með sparikrullurnar í MH, Sunna gæskan: 17 ára (driver ? as if) :o
29. Davíð: 16 ára foli ;)

Til hamingju með þessa merku daga elskurnar ;*

EN var að tala við söndru og hún er að fara að koma heim 20! hélt hún & ég hlakka tremma mikið til að fá hana heim :haha: .. missir reyndar af menningarnótt. vorkenni henni samt ekki neitt þar sem hún fær að versla af sér rassgatið í köben :o gellan búin að fjárfesta í nýrri fartölvu!

segja þetta gott .. meira á eftir ef ég nenniiiii

» 7 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 03:19:31 / jonas

guðminngóður

           
156 - Mew
Grand

Verslunarmannahelgin: búin. hún var grand þessi elska [þetta orð var orðið gubb-þreytandi]. þrátt fyrir það ætlum við pearly til eyja næst. hef frétt að þar hafi skandallinn verið þetta árið. Einnig var sveitt á akureyri & jóhanna hélt uppi partýi á tálknafirði með ömmu sinni & afa.

Like it or leave it þá eru fjórir dagar þar til sundið byrjar aftur. jesús. fór í sund í gær og var var nær dauða en lífi eftir 800. svo er það reykjavíkurmaraþonið, sem okkur hefur verið skipað að taka þátt í. 10 km takk fyrir. verð í hjólastól á menningarnótt!

Af ofangreindu má ráða að næsta helgi verður sú síðasta af mínu sumarfríi & ég hef heyrt að það stefni í feitan skandal á hinum ýmsustu bæjum sem lofar góðu :o en jafnvel meira um það síðar.

Auður ;*
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 01:48:29 / jonas

það skal vera .. grand

 hææ. Fallega fólk ég hef ekkert að gera og get ekki sofnað.

Að mínu mati er alltof stutt eftir af sumarfríinu. Þetta er samt búið að vera tremma hresst.:o

Allir í útlöndum, þannig að mér finnst ég útundan þar sem ég sinni daglegum störfum í sjoppunni minni. Sandran mín á Tenerief [spáni] , sólveig on her way to Florida takk fyrir, elsku Perla uppí sveit! búin að vera þar aaaalltof lengi [en heppin ég að fara að vinna þar með henni um versló :haha:]

En gott fólk erum við að tala um að hún Sigga [lögfræðingurinn minn til 3 ára] sé feitast á leiðinni í MH beibíj! búið að taka ár fyrir hana að átta sig á að versló er ekki málið. Svekkjandi fyrir u folks sem er að fara þangað! :o En talandi um það þá er Perla búin að yfirgefa þann dauðansstað líka, farin í Flensborg [enda nær henni en hitt húsið] svo hef ég frétt af ýmsu öðru fólki héðan og þaðan sem er að hætta þar.

En í kvöld var stelpuhittingur hjá Sólveigu ;* alltaf gaman að hitta þessar elskur! var farin að sakna þeirra mest .. svo enduðum við, ég, Tinna beibíj og Hildur skvíz heima hjá Oddi í smá stund áður en mér var ekið heim á kagganum hennar Hildar sem hún fer reglulega með í bíltúr um gangstéttir landsins!

Áður en ég segi þetta gott í bili þá langar mig að varpa fram þeirri spurningu hvort það sé bara ég eða eru allir að halda framhjá öllum með öllum ?

Þar til næst, Auður :D
 

» 9 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 10:51:12 / jonas

fasten your seatbelts ;]

Jæja. Ákvað að nota eyðuna mína í að dúndra inn bloggi, frekar en að læra :/ en jáh það eru ekki nema rúmlega 2 dagar eftir að skólanum! :lol: svo nottla próf .. En fyrst ég er farin að röfla um skólatengda hluti þá verð ég að minnast á að ég var að koma úr líffræðitíma, sem var ótrúlegt en satt bara nokkuð skemmtilegur [oki skemmtilegur er kasski ekki rétta orðið ,, áhugasamur væri nær því að vera rétt] .. Vorum nefnilega að kryfja brjóstholslíffæri úr svíni. Undir það flokkast m.a. lungu, hjarta, vélinda & eitthvað álíka heillandi. Ég ákvað að leyfa samstarfsmönnum mínum að spreyta sig á krufningunni en .naut. þess í staðin að horfa á .. ekki beint geðslegt enda þurfti einn strákur að yfirgefa tímann vegna ógleði 8| .. Ég er líka alveg viss um að það muni ekki margir gefa kost á sér í að kúra fram á eitt af borðunum í þessari stofu eftir þetta!

En já þreytan er virkilega farin að segja til sín, eftir þrjár morgunæfingar það sem af er vikunnar! Stefnir allt í að verða ein af erfiðari vikum í laaaangan tíma sem endar á sundmóti á laugardaginn & vil ég af gefnu tilefni minna almenning og keppendur á að byrgja sig upp af mat og öðrum nauðsynjum & að tímaverðir taki með sér dagatal. Já þessar varúðarráðstafanir voru gefnar út af mótsstjórn vegna þess að ég er skráð í 100&200 bak! ooog 100 bringu líka! Hvert er heimurinn að stefna hugsa einhverjir núna ?! :lol: En já ég vaknaði eldhress í morgun til þess að skunda á morgara. En í stað þess að fara auðveldustu leiðina og fá bara far með Baldri niður í laug ákvað ég að skella mér á línuskautunum mínum sem var bara hressandi (: 

Nóg frá mér ;] laterrr


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 11:01:13 / jonas

heimsklassabeiler

Gleðilegt sumar ;*

Jáá það er indeed kominn tími á blogg ;] Páskafríið búið. Skólinn stefnir í það sama & ég veit ekki um marga sem munu mótmæla því. En ég varði fríi mínu að mestu leiti í Amsterdam þar sem ég & Ólöf tókum villt myndaflipp, versluðum & svo stóð rauða hverfið fyrir sínu .. syntum líka eitthvað smá svona inn á milli! Það var ekki nóg með að sundlaugin væri full af vatni heldur var bakkinn einnig á floti .. Ólöf missti einfaldlega vatnið yfir efnilegum Hollending á fyrsta mótsdegi & hélt svo uppteknum hætti næstu tvo daga. Þess má til gamans geta að eftir endurkomu okkar á klakann hefur hún verið að standa sig í stykkinu sem gæða-stokker. Búin að redda skóstærðinni hans .. een förum ekki nánar út í það! Þetta var bara ljómandi fín ferð í alla staði .. fyrir flest okkar, nema greyið Oddur var ekki sáttur þar sem honum tókst með glæsibrag að leika píslavott allan tímann, enda ekki skrítið þar sem hann gerði garðinn frægan í uppfærslu á leikritinu um Pétur Pan á sínum yngri árum.

En ég hóf þennan líka dásamlega dag á því að skella mér ásamt nokkrum öðrum geðsjúklingum & Jóa Fel í World Class um klukkan 6 í morgun. Þar vorum við undir handleiðslu Leifa í klukkutíma. Get ekki sagt að þetta hafi beint verið óskaklukkutími. Hann einkenndist af sjálfspyntingum í lyftingarsalnum & þess má til gamans geta að ég á nú þegar erfitt með að labba. Einnig tókst honum Jakobi Jóhanni Sveinssini að brjóta stól á svæðinu. Vil ég óska honum innilega til hamingju með þann stórfenglega árangur í ljósi þess að þetta er ekki sá fyrsti sem hann brýtur, en hann hefur einmitt nýlokið við að brjóta skrifborðsstólinn sinn. Talandi um hvali ?

En nú er íslenska næst á stefnuskránni þannig að ég sejgi þetta gooot í bili :) 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 14:50:06 / jonas

Hvað get ég sagt ?

                      
                    Jæja eftir ritstíflu síðustu .. mánuðina 8| hef ég ákveðið að skella einu stuttu inn. Fyrir þá sem vilja sjá meistarverk þá er bara endilega að kíkja á nýjustu færsluna mína á b.c.is/tudrur ;)  slagar hátt uppí  að vera gullaldarblogg ..Ef það er ekki bara eitt slíkt :lol:

       En þetta stefnir ekki í að verða neitt mikið lengra hérna, búin með kvótann minn. Bara páskafrí, útlönd [nánar til tekið Amsterdam] sem verður awesome :haha: ég&Ólöf í ham. Verðum ekki nema 6 ægiringar + Kolla! og svo bara slaka aðeins á (: svo er aldrei að vita nema ég fari að leysa sólveigu undan störfum sem gestabloggari :lol:

       Laterrr (:

      

» 9 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 22:25:05 / gestur

blogga hvað?

jæja góðir hálsar hvað segir fólkið núna?

já ég er nokkuð hress bara;) ákvað að blogga til þess að halda þessu uppi hérna;)

en ég hef nú ekki mikið að segja skal ég segja ykkur:haha:

en við erum að fara til hveragerðis um helgina og gistum í ölfusborgum:haha: já það verður bara gaman verðum framm á sunnudag:D og ætlum við öll að koma með góða skapið og hafa það geggjað gaman er það ekki málið? jú held það barasta;)

en það er nú ekki mikið að frétta nema Siggi harði er farinn að stunda fótsnyrtingu? hvað þá? já ég veit nú ekki hvað mér finnst um það en ég segi ekkert meira þetta segir allt sem segja þarf;)

já en Sólveig Sif is out8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2